Lífið

Stjörnurnar styrkja útrás leyniútvarpsstöðvar

Bubbi er meðal þeirra sem koma fram.
Bubbi er meðal þeirra sem koma fram.
Styrktartónleikar verða haldnir fyrir eina best földu útvarpsstöð landsins, XA radíó, föstudaginn langa í Háskólabíói. Eina íslenska dagskrá XA radíó er upplestur úr AA-bókinni, en megindagskrárefnið eru hins vegar upptökur af erlendum félögum úr 12-spora samtökum eins og Alcoholics Anonmyous (AA), Overeaters Anonmyous (OA), Narcotics Anonmyous (NA) og Al-anon þar sem þeir tala um reynslu sína.

„Við hófum útsendingar á föstudaginn langa árið 2003 og höfum verið svo til non stop í loftinu síðan," segir Magnús, einn aðstandenda stöðvarinnar. Fyrir tveimur árum síðan hóf hún útsendingar á Akureyri, og segir Magnús að nú hafi aðstandendum fundist tími til að breiða boðskapinn víðar og koma fyrir sendi á Suðurlandi.

XA radio myndi þá nást um allt Suðurland og uppsveitir, í sumarhúsabyggðum, og ekki síst á Litla-Hrauni, en Magnús segir marga þar hafa þörf að heyra boðskapinn. Aðspurður hvort sá boðskapur sé ekki eitthvað sem maríneraðir sumarbústaðagestir hefðu not fyrir segir Magnús að skilaboðin séu kannski ekki velkomin að kvöldi dags. „Ég efast ekki um að það séu margir sem vilja heyra þetta morguninn eftir," segir hann kíminn.

Stöðin er eingöngu rekin fyrir frjáls framlög, og hefur engar tekjur af auglýsingum. Sendirinn kostar með uppsetningu á aðra milljón, því bregða aðstandendur á það ráð að halda tónleika til að fjármagna hann. Fjöldi listamanna kemur fram á tónleikunum og gefa þeir allir vinnu sína. Má þar nefna tónlistamenn á borð við Bubba, Pál Óskar Hjálmtýsson, KK, Ellen Kristjánsdóttur og Eyþór Gunnarsson, Ragnheiði Gröndal, rapparann Poetrix, dúettinn Pikknikk og Einar Ágúst.

Tónleikarnir hefjast klukkan 22, beint á eftir afmælisfund AA samtakanna í Laugardalshöll. Miðaverð er 2500 krónur, og rennur það óskipt til kaupa á sendinum. Miðarnir fást á miða.is og sölustöðum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.