Gagnrýna aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar 18. mars 2008 15:30 MYND/GVA
Fulltrúar Vinstri - grænna og Framsóknarflokksins í efnahags- og skattanefnd gagnrýna að ríkisstjórnin hyggist ekkert aðhafast til þess að takast á við það ástand sem skapast hefur í efnahagslífinu. Þeir benda á að auka þurfi gjaldeyrisforða Seðlabankans. Fram kom í máli Geirs H. Haarde forsætisráðherra eftir ríkisstjórnarfund í morgun að ekki yrði gripið til sérstakra aðgerða vegna þróunarinnar og benti hann á að gengi krónunnar hafa verið of hátt skráð. Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður Vinstri - grænna og fulltrúi í efnahags- og skattanefnd, gefur lítið fyrir orð forsætisráðherra. „Yfirlýsingarnar eru harla innihaldsrýrar og í samræmi við það sem áður hefur komið frá ríkisstjórninni. Það er að koma í ljós að langvarandi efnahagsóstjórn hefur grafið undan stöðugleikanum, langvarandi þensla, áhersla á stóriðju og glæfraspil ýmissa fjármálastofnana hefur leitt okkur að þessu," segir Ögmundur. Hann minnir á að Vinstri - græn hafi lagt fram ítarlegar tillögur í frumvarpi til þess að koma aftur á stöðugleika. Meðal þess sem lagt sé til sé að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabankans og grípa til ýmissa aðgerða sem séu aðstöðujafnandi í landinu. „Ekkert af þessu verður gert í einu vetfangi, það þarf samspil margra þátta en það þarf að koma á stöðugleika," segir Ögmundur. Ögmundur segir að þó að það sé rétt að óróleikinn í efnahagslífinu eigi að sumu leyti rætur í útlöndum þá beri stjórnvöldum einnig að spyrja sig að því hvað sé heimatilbúið og hvað hægt sé að gera til að takast á við vandann. „Menn hafa sagt að væntingar skipti máli. Yfirlýsingar um markviss viðbrögð væru mikilvægar og þess vegna vekur það furðu hve úrræðalítil ríkisstjórnin er. Hún ætlar að bíða og fá sér enn einn skammt, eina álverksmiðju í viðbót," segir Ögmundur. Ögmundur segir margar allsherjarlausnir hafa verið lagðar fram á síðustu árum en þær hafi ekki allar reynst happadrjúgar. „Það væri að mínu mati ekki slæmt ef það væri einn banki enn í eigu ríkisins sem væri ákveðin kjölfesta," segir Ögmundur og bætir við að í litlu efnahagskerfi líkt og því íslenska skipti máli að það sé kjölfesta. Magnús Stefánsson, fulltrúi Framsóknarflokksins í efnhags- og skattanefnd Alþingis, segir framsóknarmenn hafa kallað eftir því í nokkrar vikur að ríkisstjórnin bregðist við vandanum en ekkert hafi verið gert. „Maður hefði haldið að ríkisstjórnin myndi beita sér í stjórn efnahagsmála," segir Magnús.„Auðvitað er það svo að ástand á alþjóðamörkuðum er meginorsök vandans hér á landi en menn hafa þó úrræði," segir Magnús enn fremur og segir hagfræðinga hafa lagt til að auka gjaldeyrisforða Seðlabankans. Aðspurður segir Magnús gengislækkunina koma illa við heimili landsins og því sé spurning hvort ríkisstjórin geti ekki brugðist við með einhverjum hætti, til að mynda með því að beita sér fyrir að álögur á eldsneyti verði lækkaðar.Þá segir Magnús að ákveðin mótsögn felist í því að tala um að mikilvægt sé að hafa íslensku krónuna sem efnahagsstjórntæki en svo ætli menn ekkert að gera þegar syrti í álinn. „Ég er undrandi á að ríkisstjórnin ætli að sjá hvað gerist og þessi viðbrögð koma mér verulega á óvart," segir Magnús.
Mest lesið Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Allt að sautján stiga hiti í dag Veður Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Innlent Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Innlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Fleiri fréttir Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Sjá meira