Innlent

Beðið eftir tillögum frá eldsneytisnefnd ráðherra

Bensínlítrinn er kominn upp í tæpar 148 krónur í sjálfsafgreislu hjá stóru olíufélögunum, eftir enn eina hækkunina í gær. Fjármálaráðherra hefur ekki enn gert grein fyrir tillögum nefndar um tímabundna lækkun opinberra gjalda á olíu og bensín.

Bensínlítrinn hefur hækkað um 15 krónur frá áramótum, þar af um fjórar krónur síðan á föstudag miðað við sjálfsafgreiðslu. Með fullri þjónustu kostar hann tæpar 153 krónur. Dísilolían hefur hækkað enn meir og kostar lítrinn nú tæpar 163 krónur með fullri þjónustu og er orðin tíu prósentum dýrari en bensín.

Félag íslenskra bifreiðaeigenda hefur reiknað út að það kosti 275 þúsund að aka meðal fjölskyldubíl í eitt ár á núverandi bensínverði sem er 60 þúsund krónum meira en á bensínverðinu fyrir réttu ári.

Nefnd sem fjármálaráðherra skipaði fyrr í vetur til að endurskoða skattlagningu hins opinbera á olíu og bensín í ljósi mikillar eldsneytishækkunar hefur nú skilað greinargerð sinni til þriggja ráðherra en innihaldið hefur ekki verið gert opinbert.

Eins og fram hefur komið hefur ríkissjóður hagnast verulega á olíuverðshækkuninni því virðiðaukaskattur leggst í prósentuvís ofan á erlenda hækkun og fastagjald ríkisins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×