Erlent

Forsætisráðherra Kína sakar Dalai Lama um óeirðirnar

Kínverski forsætisráðherrann Wen Jiabao hefur ásakað Dalai Lama um að hafa staðið á bakvið óeirðirnar og uppþotin í borginni Lhasa í Tíbet að undanförnu.

Þetta kom fram á blaðamannafundi sem ráðherrann efndi til vegna málsins. Þetta er í fyrsta sinn sem Wen tjáir sig um málið eftir að óeirðirnar og mótmælin hófust þann 10 mars.

Hann varði aðgerðir stjórnar sinnar og sakaði mótmælendur um íkveikjur, þjófnaði og ofbeldi. Markmið þeirra væri að varpa skugga á olympíuleikana í Bejing í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×