Nýi ríkisstjórinn í New York í framhjáhaldi 18. mars 2008 07:34
Vandræðagangur Demókrata með ríkisstjóra sína í New York heldur áfram. Sá sem tók við af Eliot Spitzer hafði varla náð að sverja embættiseiðinn þegar fregnir af framhjáhaldi hans spurðust út. Nýi ríkisstjórinn David Paterson er fyrsti blökkumaðurinn sem gegnir embætti ríkisstjóra í New York. Hann tók við embættinu í gærdag og aðeins tveimur tímum eftir að hann sór embættiseið sinn neyddist hann til að viðurkenna að hann hefði haldið framhjá eiginkonu sinni. Paterson segir í samtali við dagblaðið Daily News að hann hafi átt í kynferðislegu sambandi við aðra konu á tímabilinu 1999 til 2001. Á þeim tíma hafi hann og kona hans átt við mikla erfiðleika að glíma í hjónabandi sínu. Bæði viðurkenna þau að hafa leitað sér huggunar hjá öðru fólki á þessu tímabili. Paterson segir að hjónaband þeirra hafi um það bil verið að leysast upp á þessum tíma en þau hafi ákveðið að leita til hjúskaparráðgjafa og það hafi bjargað sambandinu. Hann segir að Michelle kona sína hafi vel vitað hvað var í gangi hjá honum. Aðspurður þverneitar hann að hafa leitað til vændiskvenna á umræddu tímabili en það var einmitt vændiskona sem felldi Eliot Spitzer úr embættinu.
Mest lesið Lést í sprengingunni Innlent Þrír fluttir á slysadeild vegna sprengingar í Korngörðum Innlent „Heyrðust öskur þarna uppi og það er ekkert þægilegt“ Innlent Vilja að lögreglan finni þann sem skrifaði færsluna Innlent Airbnb-lög samþykkt: Íbúðir eigi að nýtast sem heimili Innlent Einn alvarlega slasaður af sextán sem voru inni í húsinu Innlent Nú þarf ekki leyfi til að reka heilsugæslur, húðflúrstofur og fleira Innlent Húsið hannað til að gefa eftir í sprengingu Innlent Mette-Marit í einkaviðtali við NRK: „Að sjálfsögðu óska ég þess að hafa aldrei hitt hann“ Erlent Fimm bíla árekstur á Sæbraut Innlent Fleiri fréttir Stöðvuðu annað meint skuggafley Rússa á Miðjarðarhafi Einn helsti samstarfsmaður Berlusconi látinn Stjórnvöld sögð skoða hernám eða umsátur um Kharg-eyju Formaður systurflokks Sjálfstæðisflokksins vill Noreg í ESB Mette-Marit í einkaviðtali við NRK: „Að sjálfsögðu óska ég þess að hafa aldrei hitt hann“ Orbán stendur í vegi fyrir lánveitingunni til Úkraínu Segir Írani ekki lengur geta auðgað úran Bandarískur stjúpsonur El Mencho fékk krúnuna Hittler mætir Zielenski í frönskum bæjarstjóraslag Útskrifuð fyrir fimm mánuðum en neitar að fara Vilja 25 billjónir: „Það þarf peninga til að drepa vonda kalla“ Tilbúnir til að sprengja flugbrautir á Grænlandi Farage í klandri vegna myndbanda fyrir nýnasista og öfgamenn Banksy opinberaður, enn einu sinni Fjárframlög til BBC World Service aukin vegna upplýsingaóreiðu Black Cube sakað um njósnir fyrir kosningar í Slóveníu Viðvörun gefin út á Bretlandseyjum vegna heilahimnubólgu Trump hótar umfangsmiklum árásum á olíuinnviði Íran Olíuvinnslur rýmdar eftir árásir á eitt stærsta gassvæði heims Reyna að rjúfa hljóðmúrinn án láta Sænskur ríkisborgari tekinn af lífi í Íran Säpo varar við aukinni ógn frá Rússlandi Krefjast rúmlega sjö ára fangelsis yfir glæpaprinsinum Felldu enn einn ráðherrann: Reyna að ryðja leiðina fyrir Írani en gætu eflt herinn Tillögu um lögleiðingu dánaraðstoðar hafnað í Skotlandi Skárri staða í Álasundi Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Sjá meira