Leynd yfir heimsókn utanríkisráðherra til Afghanistan 15. mars 2008 12:47
Utanríkisráðherra heldur ásamt fylgdarliði sínu til Afganistan á morgun. Mikil leynd hvílir yfir ferðum ráðherra á meðan ferðinni stendur og mun fimm manna lögreglulið úr sérsveit ríkislögreglustjóra sjá um að tryggja öryggi sendinefndarinnar. Hátt í sjö ár eru liðin síðan Bandaríkjamenn gerðu innrás í Afganistan og steyptu stjórn Talibana af kolli. Þótt búið sé að koma á nýrri ríkisstjórn og ný stjórnarskrá verið samþykkt, er ástandið í landinu enn mjög eldfimt. Efnahagurinn er í rúst, ópíumframleiðsla blómstrar og alþjóðaherliðið í landinu berst enn á banaspjótum við uppreisnarmenn úr röðum Talibana. Nú síðast í morgun var gerð sjálfsvígsárás á bílalest NATO og létu tveir lífið. Íslendingar eru meðal þeirra 40 þjóða sem taka þátt í uppbyggingarstarfi í Afganistan. Þar eru nú staddir 14 íslenskir friðargæsluliðar og bætast þrír til viðbótar á næstu vikum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, segir Afganistan eitt mikilvægasta málefni innan þeirra alþjóðasamtaka sem Ísland er aðili að. Þess vegna skipti miklu máli að íslensk stjórnvöld kynnist ástandinu af eigin raun. Af öryggisástæðum má ekki greina frá hverja Ingibjörg ræðir við í ferðinni og ekki fást upplýsingar um hvernig ferðum hennar er háttað. Með í för er fimm manna lögreglulið úr sérsveit ríkislögreglustjóra sem sem ætlað er að tryggja öryggi sendinefndarinnar. Er þetta í fyrsta sinn sem íslenskt lögreglulið fylgir ráðherra á erlendri grundu. Heimsókn ráðherra stendur fram á skírdag. Fréttamenn Kompáss eru staddir í Afganistan og munu þeir flytja okkur fréttir þaðan á næstu dögum.
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fleiri fréttir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Sjá meira