Geitungar í Kópavogi boða vorið 14. mars 2008 13:34 Þessi vorboði vekur ugg í brjósti sumra.
Heiðlóan á undir högg að sækja í samkeppni sinni við aðra íslenska vorboða en geitungar eru löngu orðnir fastur liður hér á landi með hækkandi sól. Nokkrir smiðir sem vinna að viðhaldi gamals húss við Þinghólsbraut í Kópavogi töldu sig greina vor í nánd þegar einn gulbröndóttur í stærri kantinum birtist á vinnupallinum hjá þeim nú í hádeginu. „Hann er ósköp rólegur, liggur bara hérna undir plastflösku hjá okkur," sagði Ágúst Leifsson smiður þegar visir.is ræddi við hann. Ágúst bætti því við að greinilegt þætti að geitungurinn væri að vakna úr vetrardvala sínum því hann virtist slappur og lítt til stórræðanna. A.m.k. hefði hann ekki gert neina atlögu að þeim félögum heldur haldið sig til hlés að mestu. Erling Ólafsson, skordýrafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, kvað þetta óvenjulegt en alls ekki óhugsandi, hér væri um að ræða drottningu en þær einar leggist í dvala að hausti og vakni á ný að vori til að halda áfram búskap sínum. „Þeir eiga ekki að koma svona snemma en það er alltaf einn og einn sem vaknar þegar fer að hlýna í veðri. Ég geri fastlega ráð fyrir að þetta sé holugeitungur og hans eina lífsvon er að leggjast í dvala aftur," sagði Erling. Hann útskýrði enn fremur að þegar geitungadrottningar leggist í dvala að hausti séu þær tilbúnar að hefja vorverkin upp úr miðjum maí með því að fæða af sér vinnudýr. Þá fari lífsferli geitunganna almennt í gang með tilheyrandi búsmíðum og fólk fari að verða vart við þá í görðum og víðar. „Þeim sem svindla og vakna fyrr verður að jafnaði ekki kápan úr því klæðinu," sagði Erling að lokum og spáði drottningunni við Þinghólsbraut ekki langra lífdaga.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Írisi Elvu Tíu milljarða króna verk en ljósastýrð gatnamót Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Sjá meira