Innlent

Ríkisskattstjóri endurgreiði Baugi 75 milljónir króna

MYND/Vilhelm

Ríkisskattstjóra hefur verið gert að endurgreiða Baugi Group 75 milljónir króna vegna oftekinna opinberra gjalda samkvæmt ákvörðun yfirskattanefndar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Baugi.

Um er að ræða anga af Baugsmálinu svokallaða en ákveðnum þáttum þess var vísað til skattrannsóknarstjóra árið 2003. Komst hann að því að endurákvarða bæri opinber gjöld vegna átta atriða á árunum 1998-2002. Þar á meðal voru starfstengdar greiðslur til nokkurra yfirmanna félagsins á árunum1998-2002 samtals að fjárhæð rúmlega 200 milljónir króna þar sem ekki hefði verið haldið eftir staðgreiðslu.

Nam endurálagningin samtals 464 milljónum króna en síðar kom í ljós að meintur vangreiddur tekjuskattur hafði verið ofreiknaður og nam skattaskuld Baugs 142 milljónum. Baugur Group greiddi umrædda fjárhæð.

Ágreiningur var um þrjá af átta liðunum sem voru til skoðunar og fjallaði yfirskattanefnd um þá. Segir Baugur að yfirskattanefnd hafi í úrskurði sínum komið í öllum aðalatriðum komið til móts við sjónarmið Baugs Group að því er varðar starfstengdar greiðslur til nokkurra yfirmanna félagsins á árunum 1998-2002. Fallist hafi verið á að stærstur hluti þessara greiðslna hefði ekki verið staðgreiðsluskyldur fyrr en með gildistöku tiltekinnar reglugerðar árið 2001. Því lækkar vangreidd staðgreiðsla félagsins um 75 milljónir króna frá endurálagningu ríkisskattstjóra.

Hins vegar var ekki fallist á sjónarmið félagsins varðandi hina tvo liðina. Annars vegar var um að ræða greiðslur til tveggja manna sem félagið hefði talið verktaka en ekki launþega. Þeir höfðu fengið samtals um 29 milljónir króna í greiðslur.

Hins vegar var að ræða ræða meintan vanframtalinn söluhagnað hlutabréfa á árinu 1998 vegna tilurðar Baugs með sameiningu nokkurra félaga, aðallega Hagkaupa og Bónus. Var þessi vanframtaldi söluhagnaður talinn nema að minnsta kosti 407 milljónum en „að öllum líkindum" um það bil 1,5 milljörðum. Segir í tilkynningu Baugs að félagið íhugi að leita réttar síns fyrir dómstólum að því er varðar síðarnefnda liðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×