Umboðsmanns aldraðra ekki getið í stjórnarsáttmála 12. mars 2008 15:59 MYND/GVA
Ekki kemur fram í stjórnarsáttmálanum að til standi að koma á fót umboðsmanni aldraðra og því þurfa stjórnarflokkarnir að ræða það, sagði Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingamálaráðherra í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Það var Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sem spurði ráðherra um málið. Benti hann á að málefni aldraðra hefðu verið mjög til umræðu fyrir síðustu þingkosningar og Samfylkingin hefði sett það á oddinn að setja þyrfti á fót embætti umboðsmanns aldraðra. Sá málflutningur hefði hlotið mikinn stuðning og spurði hann ráðherra hvað liði þessum áformum. Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingamálaráðherra sagði málefni aldraðra og lífeyrisþega allra einn mikilvægasta málaflokk ríkisstjórnarinnar en að upplýsingagjöf til aldraðra þyrfti að bæta. Hún hefði áhuga á að gera það í samráði við hagsmunasamtök aldraðra. Hins vegar væri umdeilt á þingi hvort setja ætti á fót umboðsmann fyrir sérstakan málaflokk. Sagðist Jóhanna hafa staðið að hugmyndum um umboðsmann aldraðra ásamt félögum sínum í Samfylkingunni en embættisins væri ekki getið í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarflokkana og því þyrfti að ræða um þetta á milli flokkann. Sagði hún að fara þyrfti yfir málin heildstætt og taldi hún eðlilegt að fara yfir reynslu annarra þjóða af umboðsmönnum einstakra málaflokka.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira