Erlent

Konur og börn létust í skothríð í Afganistan

Úr myndasafni.
Úr myndasafni. MYND/AP

Tvær konur og tvö börn létust þegar þau lentu í miðri skothríð milli hersveita á vegum NATO og uppreisnarmanna í suðurhluta Afganistans í gær.

Eftir því sem segir í tilkynningu frá NATO í Afganistan munu uppreisnarmennirnir hafa skotið á hermennina sem svöruðu skothríðinni og varð hópur almennra borgar á milli. Ekki er hins vegar greint frá því hvort fólkið hafi látist af völdum kúlna frá hersveitunum eða uppreisnarmönnunum. Talsmaður hersveita NATO segir hins vegar að málið verði rannsakað ofan í kjölinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×