Erlent

Vill ekki að teikning verði notuð í pólitískum tilgangi

Danski teiknarinn Kurt Westergaard hefur ákveðið að leita til dómstóla til þess að koma í veg fyrir að andstæðingar múslíma í Danmörku noti teikningu hans af Múhameð spámanni í mótmælum sem fyrirhuguð eru í Álaborg á laugardag.

Eins og fram hefur komið var myndin endurbirt í dönskum blöðum á dögunum eftir að upp komst um áform manna um að ráða Westergaard af dögum. Hún sýnir Múhameð spámann með sprengjutúrban.

Samtökin Stöðvið íslamsvæðingu Danmerkur hugðust nota myndina í mótmælum sínum en Westergaard segist ekki vilja að pólitísk samtök eða önnur félög nýti sér myndina sér til framdráttar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×