Innlent

Forseti Alþjóðabankans til Íslands í vikunni

Robert Zoellick er hér ásamt George Bush Bandaríkjaforseta og Condoleezu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
Robert Zoellick er hér ásamt George Bush Bandaríkjaforseta og Condoleezu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. MYND/AP

Robert B. Zoellick, forseti Alþjóðabankans og fyrrverandi varautanríkisráðherra Bandaríkjanna, kemur til Íslands á fimmtudaginn til að funda með ráðherrum Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í stjórn bankans og til viðræðna við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra.

Fram kemur í tilkynningu utanríkisráðuneytisins að Ísland eigi fulltrúa í þróunarnefnd Alþjóðabankans í Washington fyrir hönd norrænu ríkjanna og Eystrasaltsríkjkanna um þessar mundir. Alþjóðabankinn er stærsta alþjóðastofnunin á sviði þróunarsamvinnu og hefur málefnavinna á vettvangi bankans hefur verið stórefld á síðustu misserum jafnframt því sem stuðningur við ýmis verkefni á vegum bankans hefur verið aukinn.

Á fundi Zoelliks á fimmtudag verður m.a. fjallað um loftslags- og orkumál, hlutverk einkageirans og framlag kvenna í efnahagsmálum.

Zoellick tók embætti forseta bankans í fyrra af Paul Wolfowitz sem hrökklaðist úr embætti í kjölfar hneykslismáls sem varðaði kærustu hans sem starfaði hjá bankanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×