Svartur Downey JR veldur fjaðrafoki 9. mars 2008 16:13 Hvar er Robert Downey?
Grínmyndin Tropic Thunder, í leikstjórn Ben Stillers er að verða ein umtalaðasta myndin í Bandaríkjunum í dag, þrátt fyrir að hún hafi enn ekki verið frumsýnd. Ástæða umtalsins er sú að í myndinni leikur Robert Downey JR svertingja, eða hvítan mann að leika svertingja öllu heldur. Ben Stiller, sem leikur og leikstýrir myndinni segir að sér hafi ekki órað fyrir því fjaðrafoki sem virðist vera í uppsiglingu en margir gagnrýna framleiðendur myndarinnar fyrir að finna ekki svartan mann til að leika hlutverk Downeys. Þessir sömu gagnrýnendur hafa líklegast ekki kynnt sér söguþráð myndarinnar nægilega vel en í henni leikur Downey hvítan Óskarsverðlaunahafa sem tekur að sér hlutverk í dýrustu Víetnam-mynd sem hefur verið gerð. Vandamálið er að í handritinu er karakterinn sem hann á að leika svartur. Í stað þess að breyta handritinu er ákveðið að Downey breyti frekar húðlitnum. Robert Downey JR til hægri, og vinstri. Myndin lofar síðan nokkuð góðu en Stiller hefur ekki leikstýrt kvikmynd síðan Zoolander leit dagsins ljós, sællar minningar. Söguþráðurinn er víst eitthvað á þá leið að framleiðendur myndarinnar gefast upp á frekjunni í Hollywood stjörnunum og skilja þá eftir í frumskóginum þar sem átti að taka myndina. Stjörnurnar átta sig ekki á því að þeir hafi verið skildir eftir en flækjast fljótlega í átök á milli stríðandi fylkinga í skóginum, án þess að átta sig á því að um alvöru bardaga sé að ræða. Von er á myndinni vestanhafs í ágúst.
Mest lesið Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Lífið Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Óléttan uppgötvaðist þremur dögum fyrir byrjun skólans Menning „Fyrri kona mannsins míns er með Parkinson, ekki ég“ Áskorun Segir son sinn ekki hafa þurft að deyja Lífið Seinfeld og Friends-leikari látinn Lífið Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Kristmundur Axel tók við af Bubba Lífið Michelle Trachtenberg er látin Lífið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Fleiri fréttir Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Kristmundur Axel tók við af Bubba Seinfeld og Friends-leikari látinn Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Sjá meira