Fermetrinn á 676 þúsund krónur 9. mars 2008 11:06 Fornaströnd 5 er föl fyrir 157 milljónir. MYND/Remax
Umræðan um lækkandi fasteignaverð virðist ekki hafa áhrif á alla í fasteignabransanum en það vekur athygli að í fasteignablaði Remax í dag er auglýst til sölu einbýlishús á Seltjarnarnesi og er verðmiðinn 157 milljónir króna. Húsið telst 232 fermetrar, ef með eru taldir 40 fermetrar sem ekki eru teknir með hjá Fasteignamati ríkisins, og bílskúrinn, sem er 50 fermetrar og sagður glæsilegur. Það þýðir að fermetraverð hússinn er um 676 þúsund krónur. „Þetta er ágætis hús," segir Vilbergur, sölumaður hjá Remax. Hann segir að verðmiðinn á húsinu sé í takti við það sem menn telja gott verð fyrir eign í þessum flokki á þessum stað. „Þetta eru dýrar eignalóðir, staðsetningin á Seltjarnarnesinu er dýrmæt auk þess sem búið er að taka húsið gjörsamlega í gegn." Vilbergur segist hæfilega bjartsýnn á að húsið seljist á uppsettu verði. „Þetta er ekki stór markhópur en reynslan hefur sýnt að það er alltaf ákveðinn hópur sem leitar að húsi á borð við þetta. Eins og áður sagði er húsið gefið upp sem 192 fermetrar en við það bætast 40 fermetrar. „Þarna er um að ræða hluta af húsinu sem var upphaflega búið að teikna sem blómaskála en er algjörlega hluti af húsinu í dag. Þar er sjónvarpsholið og svefnherbergi og það á einfaldlega eftir að setja það inn í fermetratöluna hjá Fasteignamatinu." „Húsið er steinsteypt einbýlishús á einni hæð með stórum tvöföldum bílskúr," segir í sölulýsingunni í blaðinu. „Húsið er í mjög góðu ástandi, og nánast búið að taka það allt í gegn að utan sem innan. Lóðin er sérstaklega glæsileg, öll afgirt með yfir 200 m2 timburverönd og heitum potti. Lýsing er í þakkanti með dimmer. Húsið skiptist í forstofu, gesta wc, eldhús, borðstofu, stofu, sjónvarpsstofu, 4 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Nánari lýsing: komið er inn í rúmgóða forstofu með marmaraflísum á gólf og góðum skápum, góð gestasnyrting er á vinstri hönd og mjög gott forstofuherbergi á hægri hönd. Holið er opið inní borðstofuna sem er tengd stofunni, nýlegt parket á öllum stofunum. Í stofunni er mjög góður arinn. Hægt er að ganga þaðan beint út á frábæra 200m2 afgirta verönd með heitum potti." „Á vinstri hönd úr holi er mjög glæsilegt eldhús með nýrri innréttingu og glæsilegum tækjum, meðal annars vínkæli," segir ennfremur. „Á gólfi eru fallegar steinflísar. Úr eldhúsi er gengið niður nokkrar tröppur inní þvottaherbergi og þaðan eru dyr út í garð og einnig gengið inn í bílskúrinn sem er mjög glæsilegur og vel frágenginn. Á hægri hönd úr holi er gengið inn í sjónvarpsstofu með innbyggðum 55" Plasma skjá og parketi á gólfum. Á vinstri hönd úr sjónvarpsstofu er mjög gott hjónaherbergi með góðum skápum og marmara á gólfi og er hitalögn í gólfinu. Á hægri hönd er svefnherbergisgangur og eru þar 2 góð barnaherbergi með parketi á gólfum og flísalagt baðherbergi með baðkari og sturtu." Þetta er því augljóslega glæsilegt hús og aðspurður segist Vilbergur vongóður um að honum takist að selja það. „Við settum húsið á netið hjá okkur á miðvikudaginn og það hafa borist nokkrar fyrirspurnir." Fleiri myndir af húsinu má sjá á heimasíðu Remax.
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira