Sættir í deilu ríkja Rómönsku-Ameríku 7. mars 2008 22:54 Alvaro Uribe og Rafael Correa skiptust á föstum skotum á fundinum í Dóminíska lýðveldinu í kvöld. MYND/AP
Forsetar Kólumbíu, Ekvadors og Venesúela hafa náð sátt í vikulöngum landamæradeilum sínum. Eftir því sem breska ríkisútvarpið greinir frá náðu þeir samkomulagi á ráðstefnu í Dóminíska lýðveldinu og tókust leiðtogar fyrstnefndu landanna í hendur í útsendingu sem varpað var um stóran hluta Rómönsku-Ameríku, en málið var talið geta ógnað stöðugleika þar. Eins og fram hefur komið í fréttum slitu bæði Ekvador og Venesúela pólitískum tengsl við Kólumbíumenn eftir að kólumbískar hersveitir fóru yfir landamæri Ekvadors og myrtu þar einn helsta leiðtoga uppreisnarhópsins FARC, sem staðið hefur í blóðugri baráttu í Kólumbíu í áratugi. Stjórnvöldum í Ekvador líkaði illa að þau hefðu ekki verið látin vita af því að hersveitirnar hefðu farið yfir landamærin og studdi Hugo Chavez, forseti Venesúela, Ekvadora að málum. Síðast í morgun bárust fréttir af því að Daniel Ortega, forseti Níkaragúa, hefði slitið stjórnmálatengsl við Kólumbíu vegna málsins. Áður en sættir náðust á fundinum í kvöld kom til harkalegra deilna milli Alvaros Uribe, forseta Kólumbíu, og Rafaels Correa, forseta Ekvadors. Correa sakað Kólumbíumenn um árásagirni en Uribe svaraði því til að stjórnvöld í Ekvador tengdust uppreisnarmönnum FARC og kólumbísk stjórnvöld hefðu sannanir fyrir því. Því hafnaði Correa og sagði hendur sínar ekki ataðar blóði. Viðurkenndi hann að hafa haft samband við FARC en aðeins í þeim tilgangi að reyna að knýja á um lausn gísla. Áður en hann féllst á að taka í hönd Uribe sagði Correa að bræðraríki ættu aldrei að ráðast aftur hvert á annað. Á fundinum var einnig greint frá því að kólumbísk yfirvöld hefðu ráðið annan háttsettan uppreisnarmann af dögum, Ivan Rios, í þetta sinn innan landamæra Kólumbíu.
Mest lesið Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Innlent Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Erlent „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Erlent Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ Innlent Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Innlent Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Erlent Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Innlent Fleiri fréttir Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði Sjá meira