Stórfelldur niðurskurður á Keflavíkurflugvelli Heimir Már Pétursson skrifar 7. mars 2008 18:30
Lögreglustjóra og sýslumanni á Suðurnesjum sem fer með lög- og tollgæslu á Keflavíkurflugvelli verður gert að spara 191 milljón króna á þessu ári og tæplega 260 milljónir króna á næsta ári, samkvæmt tillögum dómsmálaráðuneytisins. Ekki verður ráðið í sumarafleysingar hjá lögreglu og tolli. Nýtt embætti lögreglustjórans og sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli varð til hinn 1. janúar í fyrra. Það varð til með sameiningu ýmissra lögreglu-, sýslumanns- og tollembætta vegna breytinganna við brotthvarf hersins. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar verður þessu nýja embætti gert að spara samanlagt 450 milljónir króna á þessu ári og næsta. Halli á fyrsta rekstrarári embættisins árið 2007 var 49 milljónir króna og á þessu ári er útlit fyrir um 200 milljón króna halla á rekstrinum miðað við gildandi fjárlög. Samkvæmt tillögum sem nú liggja fyrir í dómsmálaráðuneytinu á ekki að ráða fólk til sumarafleysinga á þessu ári og næsta. Það á að spara 23,2 milljónir bæði árin hjá tollinum, 13,7 milljónir hjá almennu deild lögreglunnar, 18,8 milljónir hjá landamæradeild, 3,7 milljónir hjá rannsóknardeild og 2,1 milljón hjá öryggisdeild. Þetta gerist á sama tíma og farþegum fjölgar um tíu prósent á ári og þar með eykst umfang lögreglu og tollgæslu. Þá stendur til að segja fastlaunasamningum upp og setja á yfirvinnubann. Þetta á að skila 61,5 milljónum í sparnað á þessu ári og 123 milljónum á næsta ári. Fækkun stöðugilda í öryggisdeild um tuttugu og þrjú á að spara 18 milljónir á þessu ári og aðrar 18 á næsta ári. Samdráttur í erlendum samskiptum á að spara 3 milljónir á þessu ári og fjórar á því næsta. Þá á að draga saman í kaupum á búnaði upp á 12 milljónir á þessu ári og sex á næsta ári. Skila á tveimur lögreglubílum sem á að spara 4 milljónir sitt hvort árið. Og í yfirstjórn, á lögfræðisviði, starfsmannasviði, fjármálasviði og skrifstofu á að spara sex milljónir á þessu ári og 36 milljónir króna á árinu 2009. Samanlagt á embætti lögreglu- og sýslumanns á Keflavíkurflugvelli því að spara 190,9 milljónir króna á þessu ári og rúmar 259 milljónir króna á næsta ári. Til samanburðar eru útgjöld embættisins 1.780 milljónir króna á þessu ári samkvæmt gildandi fjárlögum.
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira