Hart í bak sett upp á 10 tímum Breki Logason skrifar 7. mars 2008 17:01 Vignir segir verkið eitthvað tengt sjómönnum. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Leikfélagið, Vér morðingjar, ætlar að framkvæma einstakan leikhúsgjörning á sunnudaginn með því að setja upp verkið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson á 10 klukkustundum. Vignir Rafn Valþórsson leikari segir fyrsta samlestur hefjast klukkan ellefu á sunnudagsmorgun og stefnt er á frumsýningu um kvöldið. „Við reyndar byrjum á því að draga um hlutverk. Síðan lesum við yfir verkið og byrjum síðan að æfa," segir Vignir en á staðnum verður hrúga af búningum og einhverjar spýtur sem nýta má í leikmynd. Nýtt æfingarhúsnæði leikhópsins við Vatnsstíg verður leiksvið þessa fornfræga verks og er öllum velkomið að kíkja inn og sjá hvernig gengur. „Við höfum auðvitað lesið eitthvað um verkið í leiklistarsögu og svona og vitum að það fjallar að hluta til um sjómenn, en raunverulega vitum við ekki neitt," segir Vignir og í ljósi þess verða nokkur stígvél á svæðinu. Í verkinu eru 6 stráka hlutverk og 4 kvennhlutverk sem eru jafnmörg hlutverk og meðlimir leikhópsins. „Við eigum samt eftir að semja reglurnar þannig að það gæti vel verið að ég þyrfti að leika konu," segir Vignir en frítt verður inn á sýninguna. Hugmyndin að þessum gjörning kviknaði í tengslum við Lókal leiklistarhátíðina sem nú stendur yfir í Reykjavík. Æfingarhúsnæði hópsins er í gamla Billjardsalnum við Vitastíg. „Það verður hægt að kaupa kaffi og pizzur og svona, og um að gera að kíkja á okkur." Leikendur eru Vignir Rafn Valþórsson, Hannes Óli Ágústsson, Dóra Jóhannsdóttir, Karl Ágúst Þorbergsson, Anna Svava Knútsdóttir, Símon Birgisson, Bjartur Guðmundsson, Lilja Nótt Þórarinsdóttir, Hilmir Jensson og Lára Jóhanna Jónsdóttir.
Mest lesið Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Lífið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Fyrsta platan í tuttugu ár Lífið Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Lífið „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Lífið Köngulóarmaðurinn slær sögulegt met Bíó og sjónvarp Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Innipúki er ekki það sama og fýlupúki Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Fleiri fréttir Fyrsta platan í tuttugu ár Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Sjá meira