Lífið

Gaukur á Stöng verður aðeins til í sögubókum

Breki Logason skrifar
KIddi Bigfoot.
KIddi Bigfoot.

„Við munum loka staðnum í einhverntíma og opna svo aftur eftir breytingar nýjan stað með nýju nafni," segir Kristján Jónsson sem rekur hinn fornfræga skemmtistað Gauk á Stöng.

Kristján sem alltaf er kallaður Kiddi Bigfoot ætlar að hafa Gaukinn opinn næstu tvær helgar og jafnvel um páskana en síðan verður Gaukur á Stöng aðeins til í sögubókum.

„Þetta verður klúbbur með áherslu á plötusnúða," segir Kiddi en í gegnum árin hefur Gaukurinn verið einn helsti tónleikastaður borgarinnar. Sá tími er liðinn og á nú að keyra á meiri klúbbastemmningu að sögn Kidda.

Margar frægar og dáðar hljómsveitir hafa stigið á sviðið á Gauknum sem verður ekki rifið að sögn Kidda. „Við ætlum líklega að búa til pall í kringum sviðið sem verður þá hluti af upphækkun með möguleika á að breyta því í svið þegar stærri viðburðir eru í gangi."

Kiddi nefnir þar Ariwaves sem hefur m.a farið fram á Gauknum. Staðnum var nokkuð breytt á sínum tíma þegar Kiddi tók við honum og segir hann það góðan grunn. „Við ætlum ekkert að rífa neina bari heldur frekar bæta við."

Gaukur á Stöng er einn stærsti skemmtistaður borgarinnar og tekur um 700 manns. Það er því mikil eftirvænting eftir nýja staðnum og ekki úr vegi að spyrja um nafnið.

„Nafnið er komið svona 90% en ekki þannig að ég þori að fara út með það. Það verður allavega ekki Gaukur á Stöng. Ég get þó sagt að þetta er gamalt nafn sem mun slá í gegn," segir Kiddi bjartsýnn á nýja staðinn að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.