Sýknaður af ákæru um kannabisræktun 7. mars 2008 11:43 MYND/Páll Bergmann
Héraðsdómur Suðurlands hefur sýknað mann af ákæru um að hafa ræktað og átt 25 kannabisjurtir og lítilræði af kannabisefnum sem fundust við húsleit á heimili hans. Lögregla gerði húsleit í íbúð mannsins þegar hann var staddur í útlöndum og fann efnin í geymslu sem brotist hafði verið inn í. Maðurinn viðurkenndi hjá lögreglu að hafa staðið að ræktuninni en dró þann framburð til baka fyrir dómi. Skýrði hann það á þann hátt að lögreglan hefði sagt sér að um svo lítið magn væri að ræða að ekki yrðu frekari eftirmál og því hafi hann talið einfaldast að ljúka málinu með játningu. Neitaði hann hins vegar að eiga kannabisplönturnar en sagðist eiga ræktunarbúnaðinn sem hann hefði notað við tilraunaræktun á tómötum. Benti hann á að hann hefði verið í útlöndum en vinur sinn hefði verið með lykil að íbúðinni og farið þangað til að gefa tveimur páfagaukum að borða fyrir sig á meðan hann dveldist erlendis. Taldi dómurinn ljóst út frá gögnum málsins að brotist hefði verið inn í geymsluna og hurðarlæsing skemmd þannig að hurðin lokaðist ekki eftir það. Ákærði hefði ekki vitað um innbrotið og þá hefði hann sagt að vinur sinn hefði verið staðinn að því að rækta kannabis. Segir í dómnum að engin rannsókn hafi farið fram á innbrotinu í geymsluna né ákærði spurður nokkuð um það hjá lögreglu. Því yrði sakfelling mannsins ekki reist eingöngu á þeirri staðreynd að fíkniefnin hafi fundist í íbúð í umsjá ákærða og á játningu hans fyrir einum lögreglumanni. Því bæri að sýkna hann.
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira