Ræddu aðkomu kvenna að friðar og öryggismálum 6. mars 2008 18:00
Aðkoma kvenna að friðar og öryggismálum var meginefni kvenleiðtogafundar sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra sat í Brussel í dag í boði Benitu Ferrero Waldner, framkvæmdastjóri Evrópusambandsins á sviði utanríkismála. Fundurinn var haldinn í tilefni alþjóðlegs dags kvenna, sem er á laugardag, 8. mars. Um fimmtíu konur tóku þátt í óformlegum samræðum um hvernig stuðla megi að stöðugleika og friði með þáttöku kvenna. Ályktun Sameinuðu þjóðanna nr. 1325 um konur, frið og öryggi og hvernig megi bæta framkvæmd hennar var sérstaklega rædd. Í þessu sambandi má nefna starf Friðarráðs kvenna um Palestínu og Ísraels, en tveir fulltrúar þess sóttu Ísland heim í febrúar sl og sátu fimm félagskonur í ráðinu fundinn í Brussel. Í innleggi sínu ræddi Ingibjörg Sólrún nýja framkvæmdaáætlun utanríkisráðuneytisins varðandi ályktun 1325. Sagði ráðherra það skipta sköpum að konur taki þátt í friðarferlum í auknum mæli. Reynslan sýndi að konur gæti að verndun kvenna og stúlkna á átakasvæðum og taki til greina sjónarmið kvenna í sömu andrá og því væri áætlunin vonandi gott tæki til að virkja kraft kvenna í þágu friðar. Á fundinum var einnig rætt um mikilvægi öflugs tengslanets kvenna en fundurinn var gott dæmi um slíkt. Meðal þáttakenda voru þjóðarleiðtogar, ráðherrar og framákonur hjá frjálsum félagasamtökum og alþjóðastofnunum, þeirra á meðal Tarja Halonen, Finnlandsforseti, Júlía Tímoshenkó, forsætisráðherra Úkraínu, og Condoleezza Rice, utanríksráðherra Bandaríkjanna.
Mest lesið Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Innlent „Þetta er sárara en tárum taki“ Innlent Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Innlent Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Erlent Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Innlent Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Innlent Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Innlent Segir Bill og aðra þurfa að svara fyrir tengsl sín við Epstein Erlent „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Innlent Fleiri fréttir Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Tveggja turna tal í Reykjavík Tillaga um „hlaðborð lausna“ felld Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári Sjá meira