Lífið

Dauðasveitir Hillary Clinton í Kastljósinu

Þórhallur og Jóhanna í Kastljósinu.
Þórhallur og Jóhanna í Kastljósinu.

Áhorfendur Kastljóssins í gærkvöldi ráku margir hverjir upp stór augu þegar sýna átti auglýsingu frá stuðningsmönnum Hillary Clinton í umræðu um forkosningar demókrata í Bandaríkjunum.

Fyrir mistök var sýnd afbökuð útgáfa af auglýsingunni þar sem sagt er að Hillary muni senda dauðasveitir heim til þeirra kjósenda sem ekki greiði henni atkvæði til þess að myrða börnin þeirra. Hin eiginlega auglýsing er öllu meinlausari en hún gengur út á að Hillary sé treystandi til að vaka yfir öryggi þjóðarinnar öllum stundum. „Hrapaleg mistök," segir Þórhallur Gunnarsson, ritstjóri Kastljóssinns.

Jóhanna Vilhjálmsdóttir fékk til sín þau Karl Th. Birgisson og Silju Báru Ómarsdóttur til þess að ræða forkosningarnar í Bandaríkjunum. Þar var minnst á áhrifaríka auglýsingu sem er sögð hafa reynst Hillary vel í baráttunni við Barack Obama í Texas og Ohio en þar fór hún með sigur af hólmi. Jóhanna gerði hlé á umræðunum til þess að sýna téða auglýsingu en fyrir mistök fór afbökuð útgáfa hennar í loftið. Að sýningu lokinni kom upp heldur vandræðaleg stemning í þættinum eins og sjá má hér að neðan.

„Við Jóhanna horfðum á hina réttu ayglýsingu fyrir þáttinn og óskuðum eftir yfirfærslu á henni en fyrir mistök var vitlaus auglýsing tekin og sett í loftið," segir Þórhallur Gunnarsson og bætir því við að Kastljósfólki hafi ekki verið skemmt. „Þetta voru hrapaleg mistök og það var mjög óheppilegt og leiðinlegt að þetta skyldi gerast," segir ritstjórinn. „Við munum gera ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir að svona nokkuð geti gerst aftur."

Hér má sjá Kastljósþáttinn.

Og hér má sjá auglýsinguna eins og hún átti að vera.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.