Vill draga Chavez fyrir dómstóla fyrir þjóðarmorð 4. mars 2008 21:46 Hugo Chavez, forseti Venesúela.
Spennan milli stjórnvalda í Kólumbíu og Venesúela virðist hafa magnast enn frekar því Alvaro Uribe, forseti Kólumbíu, segist munu óska eftir því að Alþjóðaglæpadómstólinn ákæri Hugo Chavez, forseta Venesúela, fyrir þjóðarmorð. Uribe sakar Chavez um að styðja uppreisnarsamtökin FARC í Kólumbíu sem staðið hafa fyrir blóðugri baráttu undanfarna áratugi. Segja Kólumbíumenn gögn sem fundust í herbúðum samtakanna sanna að stjórnvöld í Venesúela hafi útvegað FARC 300 milljónir dollara. Þessu neita venesúelsk yfirvöld. Forsaga málsins er sú að kólumbísk yfirvöld sendu á laugardag sprengjuþotur yfir landamæri Ekvadors til þess að ráða af dögum einn af hæst settu leiðtogum FARC-uppreisnarsveitanna, Raul Reyes. Hann fell ásamt 16 af félögum sínum. Stjórnvöld mótmæltu því að Kólumbíumenn hefðu ekki leitað leyfis til að fljúga yfir landamærin og kom Chavez þeim til stuðnings. Hafa bæði Ekvador og Venesúela sent herlið að landamærum Kólumbíu vegna málsins. Bush Bandaríkjaforseti hefur blandað sér í málð og sagði Bandaríkjastjórn styðja Kólumbíu í málinu enda hefur lengi andað köldu milli hans og Chavez. FARC hefur í yfir fjóra áratugi staðið fyrir skæruhernaði í Kólumbíu og barist fyrir því að auði landsins verði skipt á sanngjarnari hátt. Sérfræðingar segja hins vegar að samtökin fjármagni sig meðal annars með kókaínsölu og þá hafa þau tekið hundruð manna í gíslingu í baráttu sinni.
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fleiri fréttir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Sjá meira