Fjármálaráðherra skálar í nýjum íslenskum bjór 29. febrúar 2008 15:11 Jón E. Gunnlaugsson, stjórnarformaður Ölvisholts brugghúss, og Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra og æðsti yfirmaður ÁTVR, skála í Skjálfta þegar fyrstu flöskurnar runnu af færibandinu í hinu nýja brugghúsi í Ölvisholti.
Nýr íslenskur bjór, Skjálfti, verður settur á markað 1. mars, á sjálfan bjórdaginn, en þá eru 19 ár síðan sala bjórs var aftur leyfð á Íslandi, eftir áratuga bann. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá framleiðandanum. Skjálfti verður seldur í tveimur vínbúðum ÁTVR í Reykjavík til að byrja með og einnig verður hann sérpantaður í ÁTVR á Selfossi og í aðrar áfengisverslanir á landsbyggðinni. Framleiðandi Skjálfta er Ölvisholt brugghús sem er í Ölvisholti í Flóa. Skjálfti er 5% að styrkleika. „Við erum búnir að standa í mikilli þróunarvinnu vegna Skjálfta og útkoman er ekta sunnlenskt gæðaöl, sem byggir á fornum evrópskum hefðum og þeim kröfum sem sælkerar gera til góðs bjórs," segir Bjarni Einarsson, framkvæmdastjóri Ölvisholts brugghúss. Sérstöðu Skjálfta má rekja til einstakrar blöndu humla, maltaðs byggs og hveitis, sem eykur fyllingu bjórsins og auðkennandi gylltan lit hans. Með sérvöldu geri tryggir bruggmeistari Ölvisholts maltbragð Skjálfta og krafa fyrirtækisins um ferskleika útilokar notkun rotvarnarefna, sykurs og annarra viðbótarefna. Öll aðstaða í Ölvisholti er til fyrirmyndar þar sem gömul útihús hafa fengið nýtt hlutverk; hesthúsið er orðið að kornhlöðu, flatgryfjan að brugghúsi, í gömlu hlöðunni fer átöppun fram og þar er lager fyrirtækisins. Á miðanum aftan á Skjálftaflöskunum eru stuttar tilvitnanir úr Flóamannasögu og tengja þær bjórinn við svæðið þar sem hann er bruggaður. Á merkimiðanum að framan má einnig sjá norræna galdrastafi og rúnir. Rúnirnar standa fyrir sælkerabjór en galdrastafirnir tveir eru tákn drauma og væntinga. „Þeir sem hafa prófað Skjálfta gefa honum hæstu einkunn enda um úrvalssælkerabjór að ræða," segir Bjarni Einarsson, framkvæmdastjóri Ölvisholts brugghúss. „Viðtökurnar hafa verið frábærar og við vonum að það verði eins þegar bjórinn er kominn á almennan markað. Við munum framleiða 300 þúsund lítra á ári til að byrja með og þar af fara um 100 þúsund lítrar á markað í Danmörku. Þar í landi verður framleiðslan seld undir öðrum vörumerkjum á vegum Gourmetbryggeriet A/S, sem er með aðsetur í Hróarskeldu."
Mest lesið Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Lífið Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Lífið Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Lífið Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Lífið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Lífið Hvað veistu um… Djúpavog? Lífið Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Menning Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Lífið Ein heitasta leikkona landsins á lausu Lífið Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Lífið Fleiri fréttir Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Sjá meira