Lífið

Amy fallin!

Amy Winehouse, stuttu áður en hún fór í meðferðina.
Amy Winehouse, stuttu áður en hún fór í meðferðina.

Amy Winehouse er byrjuð að dópa af fullum krafti á ný eftir að hafa eytt hálfum mánuði á meðferðarstofnun. Götublaðið The Sun greinir frá þessu og hefur eftir „nánum vinum" stjörnunnar að hún sé farin að nota kókaín, ecstacy, kannabis og brennivín til að slá á sorgina en hún er sögð miður sín yfir örlögum kærastans, Blake Civil Fielder sem nú situr í fangelsi.

Þá er einnig haft eftir þessum sömu vinum að einn þeirra hafi meira að segja smyglað fíkniefnum inn á meðferðarstofnunina fyrsta kvöldið sem Amy dvaldi þar. Vinirnir hafa eftir Winehouse að án dópsins líði henni eins og uppvakningi.

Amy kom fram á Brit verðlaunahátíðinni í síðustu viku og þótti frammistaða hennar þar hafa borið þess merki að hún hefði fengið sér eitthvað annað en grænt te áður en hún fór á svið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.