Lífið

Yrsa lofuð í Bretlandi fyrir Þriðja táknið

Yrsa Sigurðardóttir.
Yrsa Sigurðardóttir.

Breska blaðið Sunday Express gefur Þriðja tákninu eftir Yrsu Sigurðardóttur fjórar stjörnur af fimm mögulegum. Segir gagnrýndandinn að útrás spennusagnanna frá Íslandi bætist við útrás í tískuverslanastarfsemi og fjármálastarfsemi í Bretlandi.

Fram kemur í tilkynningu frá Veröld, sem gefur út bækur Yrsu, að þetta sé ekki fyrsti lofsamlegi dómurinn um Þriðja táknið. Gagnrýnandi The Times ritaði að breskir lesendur yrðu nú að gefa tveimur góðum íslenskum glæpasagnahöfundum gaum, Arnaldi Indriðasyni og Yrsu Sigurðardóttur.

Þá sagði Daily TelegraphÞriðja táknið væri létt og leikandi og bókin fékk fimm stækkunargler af fimm mögulegum í vefmiðlinum Crime Squad. Enn fremur sagði Sunday Telgraph að bókin væri „fullkomin frumraun".






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.