Lífið

Hvað á húsið að heita?

Nýja tónlistar- og ráðstefnuhúsið rís nú á hafnarbakkanum í Reykjavík. Áætluð opnun er í desember á næsta ári og Bubbi Morthens hefur þegar tekið stóra sal hússins frá á Þorláksmessukvöld næstu árin. En það bráðvantar nafn á húsið, „Tónlistar- og ráðstefnuhúsið í Reykjavík" er ekki alveg að gera sig. Því hefur eignarhaldsfélagið Portus blásið til hugmyndasamkeppni um nafn. Það þarf að falla vel að íslenskri tungu, vera þjált á erlendum tungumálum, vera lýsandi fyrir starfsemi hússins þ.e. tónlist og ráðstefnuhald og undirstrika þá stefnu að húsið verði hús fólksins í landinu. Verðlaun eru vegleg fyrir sigurtillöguna (hversu vegleg fæst ekki uppgefið) og öllum sem senda inn tillögur verður sýndur viðeigandi þakklætisvottur (hversu viðeigandi fæst ekki uppgefið). Þegar starfsmenn Portus mættu í vinnuna á mánudagsmorguninn voru komnar 450 tillögur og margar mjög góðar að sögn Portus-manna. Eftir nokkrar vikur verða verðlaunin í samkeppninni veitt og fljótlega eftir það verður tilkynnt um nafnið á húsinu eftir að endanleg ákvörðun hefur verið tekin. Þá verður einnig búið að hanna vörumerkið og hönnunarlínu sem verður kynnt um leið. Skilafrestur í samkeppninni er til laugardagsins 1. mars og nú er bara að leggja hausinn í bleyti... ööö, Tónabær, Faxaskáli, Dynheimar? Pabbi Bjarkar lagði fram hugmynd á blogginu sínu. Hann vill að húsið heiti Björk






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.