Lífið

Friðrik Ómar skráir sig úr símaskránni

Friðrik Ómar Hjörleifsson verðandi Eurovisionfari hefur tekið númer sitt úr símaskránni. Friðrik var skráður með símanúmer og heimasíðu í skránni í gær, en þegar honum var flett upp í dag var hann hvergi sjáanlegur.

Mikill styrr hefur staðið um úrslitaþátt Laugardagslaganna um helgina og hafa ásakanir um ódrengilega framkomu gengið á víxl. Síminn hefur því væntanlega verið rauðglóandi hjá Friðriki undanfarna daga.

Þegar Vísir náði tali af Friðriki vildi ekki útskýra af hverju hann væri ekki lengur með skráð símanúmer. Hann sagðist vera á leið út úr bænum og ekki vilja tjá sig við fjölmiðla í bili.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.