Lífið

Brittany Murphy þarf hnetusmjörssamlokurnar sínar

Brittany Murphy er ekki í uppáhaldi hjá starfsfólki við nýjustu bíómynd hennar, Across the Hall. Hegðun hennar á tökustað versnar með hverjum deginum, að sögn heimildamanna Page Six.

Leikkonan er með óvenjulega slæma prímadonnustæla. Henni er ýmis of kalt eða heitt, og ekki nokkur leið að vita hvernig á að gera henni til geðs. Þá getur hún ekki hugsað sér að borða annað en skáskornar, skorpulausar hnetusmjörssamlokur. Hún þarf eina slíka á hverjum klukkutíma, og eyðir aðstoðarmaður hennar helmingi tíma síns í nestissmurningu.

Ekki bætir úr skák að eiginmaður hennar, furðufuglinn Simon Monjack, hangir á tökustað öllum stundum og skiptir sér að. Þurftu framleiðendur að halda neyðarfund til að ræða hvernig væri best að eiga við hann.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.