Lögregla náði þjófum eftir æsilega flóttatilraun 24. febrúar 2008 11:32
Lögregla hafði í nógu að snúast í morgun við að hafa upp á þjófi sem gripinn var glóðvolgur við að ræna skartgripaverslun í miðbænum en flúði lögreglu á fæti og svo með aðstoð félaga síns á flóttabíl. Um klukkan 08:30 í morgun sást til manns í eftirlitsmyndavélum við Veltusund þar sem hann var að brjóta rúðu í skartgripaverslun þar í götunni. Lögregla var með mannskap skammt frá og var hann þegar sendur á staðinn. Þegar vettvang var komið var maðurinn sem sést hafði til að setja inn á sig muni úr gluggaútstillingu verslunarinnar. Lögreglumenn gerðu sig líklega til að handtaka manninn en í sömu mund tók hann á rás. Lögreglumenn veittu honum eftirför á fæti. Maðurinn hlóp á spretti í átt að Ráðhúsinu, fram hjá Tjarnargötu og inn á Suðurgötu. Þegar lögreglumenn voru svo við það að ná ræningjanum á Suðurgötu stöðvaði skyndilega bíll fyrir ræningjanum og tók hann upp í. Bílinum var svo ekið upp Suðurgötuna á ofsahraða. Skömmu síðar barst lögreglu ábending um að bílnum hefði verið ekið Suðurgötu á enda, alla leið inn í Skerjafjörð. Lögreglulið var því tafarlaust sent þangað. Þar fannst flóttabíll ræningjanna yfirgefinn en sjálfir fundust þeir skömmu síðar á gangi í skerjafirðinu. Í fórum þeirra fundust nokkrir munir úr skartgripaversluninni en restin af þýfinu fannst í flóttabifreiðinni. Mennirnir tveir eru á þrítugsaldri, af erlendum uppruna.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fleiri fréttir Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Sjá meira