Hefði átt að leggja konuna inn á spítalann 23. febrúar 2008 18:42
Plássleysi á spítalanum réði því ekki að kona sem liggur þungt haldin á gjörgæsludeild Landspítalans í kjölfar meðferðar á slysadeild hafi verið send heim heldur mat læknirinn sem annaðist hana að hún væri heimferðarfær. Þetta segir Már Kristjánsson, sviðstjóri lækninga á slysa og bráðamóttöku. Fréttastofa hefur engu að síður öryggar heimildir fyrir því að svo hafi verið. Konan kom á bráðamóttöku vegna lyfjaeitrunar en talið er að hún hafi reynt sjálfsvíg. Eins og við greindum frá í fréttum okkar í gærkvöldi þá var henni veitt svokölluð kolameðferð og send heim að henni lokinni. Þegar heim var komið fór konan í hjartastopp þar sem lyfin höfðu komist í lungu hennar. Heimildarmenn fréttastofu innan veggja spítalans fullyrða að konan hafi verið send heim vegna þess að ekki hafi verið til sjúkrarúm fyrir hana sökum plássleysis. Þeir segja að eðlilegra hefði verið að konan hefði verið undir eftirliti innan spítalans lengur. Már Kristjánsson, sviðstjóri Lækninga á slysa og bráðadeild sagði í samtali við fréttastofu í dag þetta ekki rétt. Plássleysi hafi ekki áhrif á ákvarðanir lækna. Már sagði það alltaf mat læknis hvort sjúklingar væri í ástandi til að fara heim. Hins vegar geti sú ákvörðun alltaf orkað tvímælis. Hann sagðist ekki geta tjáð sig um málefni einstakra sjúklinga og vildi ekki veita fréttastofu viðtal. Hann staðfesti þó að í umræddu tilviki hefði verið betra ef konan hefði dvalið lengur á spítalanum. Þær heimildir fréttastofu fyrir því að það hafi verið plássleysið á spítalanum sem réði því að konan var ekki lögð inn heldur send heim eru afar traustar.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fleiri fréttir Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Sjá meira