Lífið

Borgarholtsskóli vann frækinn sigur í Gettu betur

Sigmar Guðmundsson spurði keppendur í kvöld.
Sigmar Guðmundsson spurði keppendur í kvöld.

Það var Borgarholtsskóli í Grafarvogi sem hafði betur gegn Menntaskólanum í Kópavogi í spurningarkeppni framhaldsskólanna Gettur betur í kvöld.

Liðin mættust í 8-liða úrslitum keppninnar í beinni útsendingu í sjónvarpinu fyrir stundu. Borgarholtsskóli var undir eftir hraðaspurningarnar en tók sig heldur betur á eftir það.

Þegar 6 stig voru eftir í pottinum var 6 stiga munur á liðunum. Menntaskólinn í Kópavogi sem komst í úrslit í fyrra náði hinsvegar ekki að jafna keppnina og það var því Borgarholtsskóli sem sigraði.

Skólinn er því kominn í undanúrslit keppninnar í ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.