Kópavogsbær styrkir Sunnuhlíð 22. febrúar 2008 18:17 Gunnar Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs.
Bæjarráð Kópavogsbæjar hefur samþykkt tímabundna fjárveitingu til sjálfseignarstofnunarinnar Sunnuhlíðar, hjúkrunarheimilis aldraðra í Kópavogi. Þetta er gert sökum þess að ekki hefur tekist á síðastliðnum tveimur mánuðum að manna vaktir að fullu. Í tilkynningu frá bæjaryfirvöldum kemur fram að styrknum sé ætlað að standa undir þeim umframkostnaði sem aðkeyptur vinnukraftur hefur í för með sér. Styrkurinn er veittur í 6 mánuði en fellur niður ef Sunnuhlíð nær að manna þær stöður sem starfsfólk vantar í. Vegna manneklu hafa átta hjúkrunarrými ekki verið nýtt í Sunnuhlíð og við þær aðstæður fær hjúkrunarheimilið ekki meðgjöf frá ríkinu fyrir þau rými. „Ekki þarf að tíunda þá þörf sem er almennt fyrir hjúkrunarþjónustu fyrir aldraða og er þessi staða því verulega bagaleg og raunar óásættanleg," segir í tillögu þeirri sem bæjarráð samþykkti á fundi sínum í gær. Eina lausnin sé aðkeypt þjónusta hjúkrunarfræðinga. „Slíkt kallar á talsvert umframfjármagn sem Sunnuhlíð hefur ekki yfir að ráða." Styrkurinn úr bæjarsjóði Kópavogs nemur samtals að hámarki 2,4 milljónum króna. Félagsmálastjóra hefur verið falið að ganga frá samkomulagi þar um.
Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Fleiri fréttir Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Sjá meira