Annmarkar á ákvarðanatöku varðandi vistun á Breiðavík 22. febrúar 2008 11:45 Breiðavíkurnefndin kynnir skýrslu sína í Þjóðmenningarhúsinu í morgun. MYND/STöð 2
Annmarkar voru á verklagi og málsmeðferð við töku ákvarðana í barnaverndarnefnd Reykjavíkur um vistun barna stóran hluta þess tímabils sem Breiðavík var starfandi, einkum á árunum 1952 til 1965-1966. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ítarlegri skýrslu nefndar Breiðavíkurmálið sem kynnt var í morgun. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í morgun telur nefndin einnig að skaðabótaskylda hafi skapast hjá stjórnvöldum vegna þess tjóns sem drengirnir sem dvöldu á Breiðavík urðu fyrir.Í skýrslunni segir einnig að gögn um störf barnaverndarnefnda í byggðum landsins á þessum tíma hafi verið af skornum skammti og því harla erfitt að draga ályktanir um störf þeirra í þessu sambandi.„Þó má ráða af öðrum gögnum, einkum eftirlitsskýrslum Símonar Jóhannesar Ágústssonar, sálfræðings, sem heimsótti Breiðavík árlega á árunum 1959-1972, að iðulega hafi engin gögn borist með þeim drengjum sem vistaðir voru af hálfu barnaverndarnefnda utan höfuðborgarinnar og að aðeins í sumum tilvikum hafi einhver slík gögn borist til Breiðavíkur eftir ítrekuðtilmæli."Þá segir nefndin að að á ákveðnum tímabilum í starfi Breiðavíkurheimilisins, einkum á árunum 1955 til 1972, verði að telja meiri líkur en minni á því að sumir vistmenn hafi sætt illri meðferð eða ofbeldi. Enn fremur kemst nefndin að því að að opinbert eftirlit með starfsemi Breiðavíkurheimilisins hafi ekki verið fullnægjandi stærstan hluta þess tímabils sem heimilið var starfandi.Segir nefndin að rökrétt sé og eðlilegt að setja fram tillögu sem lýtur að hugsanlegum skaðabótagreiðslum til fyrrverandi vistmanna Breiðavíkurheimilisins, öllum eða hluta þeirra. Þá leggur nefndin til framhald á geðheilbrigðisþjónustu til handa fyrrverandi vistmönnum og að tryggt verði eftir fremsta megni að hagsmunir barns sem tekið er af heimili verði í fyrirrúmi þegar slíkt er gert í nútímanum. „Með þetta í huga hefur nefndin við könnun sína haft samráð við Barnaverndarstofu um gildandi fyrirkomulag og málsmeðferð á sviði eftirlits með það í huga að leggja mat á hvort ástæða sé til að huga að breytingum eða umbótum á því verklagi sem nú er viðhaft í þessum málaflokki," segir í skýrslunni.Í fjórða lagi leggur nefndin til að farið verið í sams konar könnun á öðrum barnaverndarstofnunum.Skýrsluna í heild sinni má sjá hér.
Mest lesið Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Valgarð Már er látinn Innlent Flutningabílar fastir á Þröskuldum Innlent Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi Innlent Mætti með eggvopn á skemmtistað Innlent Éljagangur og slabb í kortunum Veður Fleiri fréttir Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Sjá meira