„Hrinti mér og öskraði, þetta er rán“ 21. febrúar 2008 17:13 Snyrti- og fótaaðgerðarstofa Eddu á Hverfisgötunni.
Misheppnuð ránstilraun var framin á Snyrti- og fótaaðgerðarstofu Eddu á Hverfisgötu fyrir skömmu. Rauðbirkinn, grannur karlmaður um þrítugt reyndi að ræna peningakassa stofunnar, en fótaaðgerðarfræðingur sá við manninum. Inga Yngvadóttir var að klára síðasta kúnna dagsins þegar maðurinn mætti og bað kurteisilega um að fá að hringja. Inga leyfði honum það en var með annað augað á manninum þar sem henni fannst hann grunsamlegur. „Hann var greinilega drukkinn eða á einhverju öðru," segir Inga. Inga var að klára kúnna sem kvaddi eftir að maðurinn hafði yfirgeið stofuna. Því næst fer hún að gera upp kassann þegar ræninginn birtist aftur. Nú þurfti hann rosalega mikið að pissa. „Ég leyfi honum því að fara á klósettið en fann eitthvað á mér og tók því alla peningana og faldi þá undir búnka af blöðum sem voru þarna á borðinu," segir Inga. „Þegar ég er nýbúin að því kemur hann æðandi útaf klósettinu hrindir mér utan í skáp og öskrar að þetta sé rán. Hann heimtar peningana úr kassanum en ég segi að þar séu engir peningar þar sem allir borgi með korti." Inga hleypur út á stétt, hoppar og veit ekkert hvað hún á að gera. Maðurinn reiðist, hleypur út og hverfur. „Hann hafði samt slegið í blaðabúnkann rétt áður og tók ekki eftir öllum peningunum sem þeyttust út um allt." Kúnninn sem hafði verið inni hjá Ingu eltir manninn á bíl og sér hann hitta stórann þrekvaxinn karlmann rétt hjá. „Hann hefur örugglega ætlað að ræna mig til þess að borga þessum manni sem brást illa við peningaleysinu og lamdi ræningjann," segir Inga. Lögreglan hafði síðan hendur í hári mannisins stuttu síðar. Inga segist hafa verið nokkuð skelkuð þegar maðurinn réðist inn.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fleiri fréttir Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Sjá meira