Lífið

Jessica Alba á von á tvíburum

Það virðist ganga tvíburafaraldur í Hollywood þessa dagana. Jennifer Lopez mun væntanlega fjölga mannkyninu um tvo á hverri stundu, og sögusagnir um að Angelina Jolie gangi með tvíbura eru háværar.

Jessica Alba hefur nú bæst í hóp meintra tvíburamæðra. Usmagazine hefur það eftir vini leikkonunnar að hún hafi verið í skýjunum þegar hún komst að því að hún gengi með tvö kríli. Það hafi þó ekki verið eintóm hamingja. Hún og eiginmaðurinn voru nefnilega nýbúin að innrétta barnaherbergi fyrir eitt barn þegar þau fengu fregnirnar.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.