Óskandi að forsætisráðherra gæti sungið erfiðleika burt 21. febrúar 2008 11:18 MYND/GVa
Forsætisráðherra segir stjórnvöld ekki munu láta neitt tækifæri ganga úr greipum til að leiðrétta rangfærslur um íslenskt efnahagslíf og segir mikilvægt að stjórnvöld og fjármálalífið standi saman að því að berjast fyrir hagsmunum Íslands. Með þessu var Geir H. Haarde að svara fyrirspurn Guðna Ágústssonar, formanns Framsóknarflokksins, sem lýsti yfir áhyggjum að stöðu fjármálageirans. Guðni sagði ánægjulegt að heyra að forsætisráðherra gæti enn sungið þrátt fyrir erfiðleika í efnahagslífinu og vísaði hann þar til þess að Geir tók lagið á tónleikum gegn fordómum í gærkvöld. Það væri óskandi að ráðherra gæti sungið erfiðleikana burt. Guðni benti á að íslenska útrásin hefði hökt að undanförnu og gagnrýndi hann ofurlaun og launatöku í bankakerfinu. Vísaði hann svo til orða forsætisráðherra á Viðskiptaþingi í síðustu viku um að til stæði að leita samstarfs við fjármálalífið um að standa vörð um íslenskt efnahagslíf og leiðrétta rangfærslur þar um. Spurði hann forsætisráðherra hvað væri fram undan í þessum efnum og hvort til stæði að berjast fyrir hagsmunum Íslands. Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði að það yrði að sjálfsögðu barist fyrir hagsmunum Íslands nú líkt og áður. Vísaði hann til fundar sem ríkisstjórnin átti með forkólfum viðskiptalífsins í síðustu viku og sagði að þar hefði komið fram ríkur skilningur á því að menn yrðu að snúa bökum saman í þessum efnum. Hann hefði síðan fengið til liðs við sig mann úr viðskiptalífinu til þess að leggja hönd á plóginn. Þá sagði Geir að ríkisstjórnin myndi ekki láta neitt tækifæri ganga sér úr greipum til að leiðrétta rangfærslur um íslenskt efnahagslíf. Þjóðarbúskapurinn væri góður og því þyrfti að koma á framfæri á alþjóðavettvangi.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fleiri fréttir Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Sjá meira