Sérkjör fyrir íslendinga í verslunarhug 20. febrúar 2008 21:46 Bloodgroup er ein af þeim hljómsveitum sem er á síðunni.
Nú á mánudaginn hófst sérstök „Íslensk vika" á vefsvæðinu AmieStreet.com, en hún er halding í samstarfi við Iceland Music Export. Góður fjöldi íslenskra tónlistarmanna skráði lög sín til sölu á síðunni í aðdraganda vikunnar og njóta þeir nú góðs af þeirri athygli sem að þeim er beint gegnum fréttabréf hennar, forsíðu og „Plötu dagsins" dálkinn. Má þar nefna sveitir á borð við Bloodgroup, Reykjavík! og Skáta, raftónlistarmanninn \7oi og sjálfan Jóhann G. Jóhannsson - meðal annarra - en þær hafa hlotið fjölda meðmæla og rokið upp í sölu í kjölfar átaksins. Athygli skal vakin á því að þeir Íslendingar sem hafa hug á að kynna sér síðuna og versla tónlist gegnum hana njóta sérkjara í vikunni, en með því að slá „kynningarkóðann" ICELAND í þartilgert hólf við nýskráningu hljóta þeir inneign á síðunni í formi dollara og meðmæla. Fjöldi vel þekktra hljómsveita og tónlistarmanna bjóða lög og breiðskífur til sölu á síðunni, má þar nefna nýstirnin Vampire Weekend, Teenagers og The National, auk ellismellanna Jefferson Airplane, Burning Spear o.fl., en oft má nálgast tónlist þeirra á afsláttarverði sökum frjálslegrar verðlagningarstefnu síðunnar. Um Amie StreetTónveitan Amie Street hefur vakið mikla athygli frá því til hennar var stofnað fyrir um einu og hálfi ári. Hugmyndin að bak síðunni þykir nokkuð sérstök, en sala á tónlist gengur þannig fyrir sig að verðmyndunin ræðst af vinsældunum. Þetta þýðir að öll lög sem sett eru í sölu á síðunni fyrst um sinn ókeypis - og verð hvers lags hækkar eftir því sem oftar er náð í það, en nær hámarki í 0,98$. Einnig mynda notendurnir með sér samfélög þar sem þeir skiptast á skoðunum um tónlist og mæla með því sem þeim hugnast samkvæmt ákveðnu kerfi, en slík meðmæli valda einnig verðhækkun á tónlistinni. Þetta einstaka kerfi skilar sér þannig í því að notendurnir fá beina hvatningu til að kynna sér nýja tónlist og geta stundað þá iðju með litlum tilkostnaði, en miklum ávinningi fyrir tónlistarfólk á framabraut. Þess má geta að hugmyndin að sölufyrirkomulaginu kviknaði á ölkrá, þar sem háskólanemar sátu og veltu því fyrir sér hvað myndi gera þá reiðubúna að kaupa tónlist gegnum netið. Fyrirtækið hefur fljótt náð mikilli útbreiðslu og þykir hafa breytt hugmyndum iðnaðarins um stafræna dreifingu á efni, en nýverið opnaði útibú Amie Street í Japan.
Mest lesið Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Óléttan uppgötvaðist þremur dögum fyrir byrjun skólans Menning Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Cooper bað móðurina um hönd Hadid Lífið Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Lífið Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Lífið Laufey á landinu Lífið Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Lífið „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Lífið Fleiri fréttir Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Sjá meira