Kampavín teygað sem aldrei fyrr 20. febrúar 2008 18:54
Landsmenn hafa teygað kampavín sem aldrei fyrr í góðæri undanfarinna ára. Kampavínssala jókst um rösklega áttatíu prósent milli áranna 2003 og 2006. Íslendingum hefur löngum verið legið á hálsi fyrir neyslugleði. En í grein Þóru Helgadóttur hagfræðings í Markaðnum í dag kemur fram að neyslan hér er mun sveiflukenndari en hjá öðrum vestrænum ríkjum. En það þýðir líka að þegar vel árar flykkjumst við í búðir. Og höfum reyndar gert æ oftar því Íslendingar neyta nú um helmingi meira en þeir gerðu fyrir aðeins 10 árum. Bara Írar slá okkur við í neysluaukningunni. Og síðustu árin hefur mikil bjartsýni einkennt þjóðfélagið - eins og sjá má þegar skoðað er hvað landsmenn hafa bætt við sig af ýmsum lúxusvarningi. Þóra bendir meðal annars á - og hefur upp úr rannsókn hagstofunnar á útgjöldum heimilanna, að: Árið 2003 - áttu aðeins 5,8% heimila í landinu tjaldvagn. Yfir tvöfalt fleiri áttu tjaldvagn - þremur árum síðar. Árið 2003 áttu 2,6% heimila vélsleða - næstum eitt af hverjum tuttugu heimilum átti vélsleða árið 2006. Sjónvarpstæki eru líklega á hverju heimili en á 5% heimila voru fjögur sjónvarpstæki eða fleiri árið 2003. Slík sjónvarpstækjaauðlegð var komin á 8% heimila þremur árum síðar. Og þarfasti þjónninn er auðvitað til á flestum betri heimilum - en árið 2004 var minnst þriggja bíla floti á fjórum komma þremur prósentum heimila - tveimur árum síðar var viðlíka floti á sjö komma þremur prósentum þeirra. Og svo eru það guðaveigarnar - drykkurinn freyðandi gullni sem mörgum finnst æðstatákn hins ljúfa lífs - kampavínið. Þar höfum við Íslendingar aldeilis tekið okkur á. Árið 2003 sötruðum við tæplega sextán þúsund lítra af kampavíni - þremur árum síðar svolgruðum við í okkur næstum helmingi meira, eða tæplega 29 þúsund lítra.
Mest lesið Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Erlent „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Innlent Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Innlent Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Innlent Fleiri fréttir Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Sjá meira