Ósáttur við niðurstöðu Neytendastofu 20. febrúar 2008 15:03 Neytendastofa er til húsa í Höfðatorgi. MYND.E.Ól
Framkvæmdastjóri Vagnsson MultiMedia er mjög ósáttur við þá ákvörðun Neytendastofu að sekta hann um hálfa milljóni króna fyrir að hafa ekki afskráð lénið tónlist.is eins og fyrri úrskurður Neytendastofu kvað á um. Hann bendir á að lénið sé nú komið í hendur eigenda tonlist.is sem kvartaði til Neytendastofu. Eins og greint var frá á Vísi í morgun kvartaði eignarhaldsfélagið MúsikNet, sem rekur vefinn tonlist.is, til Neytendastofu yfir skráningu og notkun Vagnsson MultiMedia á léninu tónlist.is. Neytendastofa komst að því í fyrra að Vagnsson MultiMedia hefði brotið gegn lögum um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins. Var félaginu bannað að nota lénið og gert að afskrá það innan fjögurra vikna. Þegar því var ekki sinnt ákvað Neytendastofa að beita framkvæmdastjóra Vagnsson sektum sem fyrr segir. Haukur Vagnsson, framkvæmdastjóri Vagnsson MultiMedia, er óhress með ákvörðun Neytendastofu. Hann bendir á að úrskurðarnefnd léna, sem fjallar um deilur vegna léna hér á landi, hafi komist að því að krafa MúsikNets um að lénið tónlist.is yrði umskráð á fyrirtækið, yrði ekki tekin til greina. Neytendastofa hafi svo komist að því að hann hefði brotið gegn lögum um óréttmæta viðskiptahætti og gagnsæi markaðarins en þau lög hafi tekið gildi eftir hann hefði tryggt sér lénið tónlist.is snemma árs 2005. Haukur bendir enn fremur á frekar ætti að beina spjótunum að ISNIC, sem sér um skráningu og úthlutun léna undir þjóðarléninu .is. „Ég kaupi bara þjónustu af ISNIC í samræmi við þá skilmála sem fyrirtækið setur og ég borga uppsett stofngjald," segir Haukur en þegar Haukur fékk tónlist.is úthlutað gilti reglan „fyrstur kemur, fyrstur fær". Haukur segist hafa sent Neytendastofu óformlegt bréf þegar stofnunin fjallaði um málið en síðan hafi stofnunin fellt úrskurð um að hann skyldi greiða sektina. Haukur bendir enn fremur á að lénið hafi nú verið látið í hendur þeirra sem reka tonlist.is. fyrirtækisins D3, og fara netnotenddur nú inn á sömu síðu hvort sem þeir slá inn tónlist.is og tonlist.is. Haukur segist ætla að áfrýja úrskurði Neytendastofu til áfrýjunarnefndar neytendamála og útilokar ekki að fara lengra með málið fallið það ekki honum í vil.
Mest lesið „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Innlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Erlent Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Erlent Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja Innlent Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Erlent „Þjóðin á rétt á að vita“ Innlent Fleiri fréttir Skipar Eirík og Hildi sem landsréttardómara Landrisi í Öskju er lokið Nú má heita Hugríkur Húrinn og Aelía Rúa Ótímabært að hafa áhyggjur af áhrifum mögulegs verkfalls á sjúkraflug „Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ „Þjóðin á rétt á að vita“ Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja „Í þessu máli þá sat viðkomandi ekki skemur í fangelsi vegna lagabreytingarinnar“ „Bjór var drukkinn á Íslandi áður en Alþingi leyfði það“ Best að vera ekki með stórar yfirlýsingar Dómari kannar aðbúnað barna í vist á einkaheimilum Dómsmálaráðherra svarar gagnrýni á reynslulausn Uppsögn kjarasamninga geti verið óhjákvæmileg Rafmagnslaust í Mosfellsdal Vara við vasaþjófum á Norðurlandi eystra Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Magnús Már nýr framkvæmdastjóri Áss „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Tilkynnt um alblóðugan mann á gangi í miðborginni Vara við að erlendir aðilar gætu náð yfirráðum yfir íslenskum sjávarútvegi Steingrímur segir nei vegna reynslu af fyrri aðildarviðræðum Rafflugvél sem gæti hentað Íslandi flýgur í fyrsta sinn Ökumenn beðnir um að sýna aðgát vegna fýlsunga Frá hrifningu til vonbrigða: Svona upplifðu borgarbúar almyrkvann Rafmagnslaust í Mosfellsbæ og Grafarvogi Sé verið að senda röng skilaboð til „kaldrifjaðra morðingja“ Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Forskot Já-hliðarinnar mælist minna ESB-málin í brennidepli og uppgjör eftir almyrkvann Einn handtekinn vegna gruns um líkamsárás og hótanir Sjá meira