Fyrrverandi yfirmaður MI6 neitar morði Díönu 20. febrúar 2008 12:31 Ökuferðin örlagaríka frá Ritz hótelinu í París sem endaði í Almagöngunum í lok ágúst 1997. MYND/AFP
Fyrrverandi yfirmaður bresku leyniþjónustunnar MI6 hefur neitað því staðfastlega að bera ábyrgð á dauða Díönu prinsessu af Wales. Sir Richard Dearlove var yfirheyrður við réttarrannsóknina sem nú fer fram í London. Vitnisburðurinn þykir sögulegur í ljósi þess að meginregla MI6 er að svara aldrei ásökunum gegn þjónustunni. Sir Richard vann ýmis störf fyrir MI6, bæði í Bretlandi og í öðrum löndum, frá árunum 1966 þar til hann fór á eftirlaun árið 2004, en þá var hann yfirmaður stofnunarinnar. Þegar hann var spurður hvort hann hefði einhvern tíman orðið var við að leyniþjónustan stæði á bakvið morð svaraði hann einfaldlegal; „Nei." Vitnisburður Sir Richard er svar við ásökunum Mohamed Al Fayed, föður Dodi, sem sakar MI6 um að myrða son sinn og prinsessuna. Sir Richard sagði kviðdómnum að ásakanirnar væru persónulegar þar sem hann hefði verið yfirmaður á þeim tíma sem parið lést. Auk Díönu og Dodi lést ökumaðurinn Henry Paul í slysinu. Í síðustu viku bar njósnari sem vann hjá MI6 vitni um að hann hefði séð skýrslu um öryggisvörð sem vann á Ritz hótelinu í París. Richard Tomlinson sagði einnig að MI6 hefði verið með áform um að drepa Slobodan Milosevic fyrrverandi forseta Serbíu með því að blinda ökumann hans með sterkum ljósum í göngum.
Mest lesið Silja sagði spurningu Einars fáránlega: „Það þýðir ekki að bendla okkur við þetta“ Innlent „Miðflokkurinn er ekki að sparka í neina krakka“ Innlent „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Innlent Svona voru kappræður oddvitanna á Sýn Innlent „Kristinn, þú ert bara fastur í rörsýn“ Innlent Sjálfstæðisflokkurinn stærstur og fylgi Miðflokks eykst á ný Innlent Íris Helga neitar sök Innlent Kjósendur vilja helst þessa flokka í samstarf Innlent Grunaður um líkamsárás og rán Innlent Árasin einkenndist af talsverðri heift Innlent Fleiri fréttir Varaði Trump við átökum vegna Taívan Sakfellingu Murdaughs snúið við og stefnir í ný réttarhöld Úkraínskir drónaflugmenn „rústuðu“ Svíum Hafa lofað Pútín að ná Donbas í sumar Streeting sagður munu skora Starmer á hólm í vikunni Trump fer til Kína: „Við erum tvö stórveldi“ Skaut á bíla af handahófi með riffli PCOS verður PMOS: Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni ei meir Frakki lífshættulega veikur af hantaveirunni Skuggaskip sem sökk bar mögulega kjarnakljúfa handa Kim Hafa gert leynilegar árásir í Íran Allir farþegar farnir frá borði og skipinu siglt til Hollands Barnaníðingur frá Ungverjalandi handtekinn á Tenerife Enn eykst þrýstingur á Starmer Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur ræða þrjár nýjar herstöðvar á Grænlandi Skaut tvo til bana og særði sex með Kalishnikov-riffli Vopnahléið í öndunarvél eftir „rusl“ svar klerkastjórnarinnar Fjaðrafok vegna ásakana um kynlífsþrælkun á Wall Street ChatGPT sagt hafa ráðlagt byssumanni að myrða börn Hafna því að hantaveiran hafi borist frá hjara veraldar Viðræður virðast stranda á kjarnorkumálunum „Gjörsamlega óásættanlegt“ Frakki sýndi veirueinkenni og allir fimm skikkaðir í einangrun Fallhlífastökkvarar aðstoða með hantasmit á afskekktri eyju „Lífið heldur bara áfram sinn vanagang“ Fyrrverandi ráðherra vill þvinga fram leiðtogakjör Fyrstu farþegar hantaveiruskipsins farnir frá borði á Tenerife Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Sjá meira