Gísli Marteinn í pólitísku blóði sínu fyrir eigin tilverknað 20. febrúar 2008 12:30
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra lýsir því yfir í bloggfærslu í nótt að ferill Gísla Marteins Baldurssonar, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, sé á enda. Hann liggi nú í pólitísku blóði sínu - fyrir eigin tilverknað. Pólitísk aftaka Össurar á Gísla Marteini er í færslu undir fyrirsögninni Sjálfseyðing ungstirnis. Þar segir Össur að allir hafi vitað að hann hafi verið operatörinn í árásunum á Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, beinlínis til að klekkja á manni sem sat í stöðu sem hann girntist. Hinn smurði kandídat heimastjórnarvængsins, eins og iðnaðarráðherra lýsir Gísla. Össur segir svo að efasemdir um Gísla hafi fljótlega vaknað, hann hafi verið linur í þáttum og fengið undarlega djúpan áhuga á að drepa máva á tjörninni. Iðnaðarráðherra spyr svo: „Hvað lá eftir Gísla Martein þegar kom að atburðarrásinni kringum REI? Ekkert, nema hræin af mávunum sem hann lét embættismenn skjóta og stillti sér svo upp hjá einsog Rambó sjálfur." Þegar stjarna Gísla hafi tekið að hníga hafi: „Æstur gjallandi (komið) í stað glaðrar raddar sjónvarpsbarnsins, tindrandi augu spámannsins sem var eins og að koma úr langri föstu utan af eyðimörkinni - þetta varð að myndinni af hinum unga stjórnmálamanni, sem minnir í dag óþægilega á framkomu nýja borgarstjórans." Þá skrifar Össur að Capacent könnunin, sem birtist í Íslandi í dag í gærkvöldi, sýni augljóslega að Gísla Marteini sé kennt um ófarir flokksins í borginni, könnunin hafi verið krýning Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og pólitískt fall Gísla Marteins. Iðnaðarráðherra lýkur svo pólitískri aftöku sinni á þessum orðum: „Hinn grátlegi gamanleikur atburðarrásarinnar er sá, að maðurinn sem startaði henni og ætlaði að láta hana lyfta sér til æðstu metorða í borginni - liggur í pólitísku blóði sínu fyrir eigin tilverknað og á sér varla afturkvæmt nema kraftaverk gerist. Hann klúðraði fyrsta sandkassaleiknum sínum."
Mest lesið Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent Birtu ekki baulið Erlent Berglind rétt marði Þórhall Innlent Fleiri fréttir Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ Sjá meira