Lífið

Verkfall handritshöfunda kostaði á annað hundrað milljarða

Hundrað daga verkfall handritshöfunda í Hollywood kostaði efnahag Los Angeles sýslu tvo og hálfan milljarð dollara. Það samsvarar um hundrað og sjötíu milljörðum króna og er minna en áður var talið.

Innifalið í tölunni, sem er niðustaða hagfræðingsins Jack Kyser, eru töpuð laun handritshöfundanna og annara starfsmanna í iðnaðinum. Þá er tap tengdra fyrirtækja tekið í reikninginn, svo sem limósínuleiga og veisluþjónusta.

Verkfallið hófst þann fimmta nóvember og lauk 12. febrúar þegar samningar náðust.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.