Lífið

Ensk útgáfa Fullkomins lífs vekur hrifningu

Búið er að snara fullkomnu lífi þeirra Friðriks Ómars og Regínu Óskar yfir á ensku og verður það flutt þannig í úrslitaþætti Laugardagslagana næsta laugardag. Evróvisionjaxlinn Páll Óskar á heiðurinn að textanum. Lagið, annað þeirra laga sem er talin eru líklegust til að verða fulltrúi Íslands í Serbíu í maí, nefnist This Is My Life í nýju útgáfunni. Hægt er að hlusta á lagið á YouTube svæði Evróvisjónsíðunnar ESCToday, þar sem Evróvisjónþyrstir netverjar fara hamförum af hrifningu á ummælakerfinu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.