Erlent

Musharraf ætlar að sitja áfram sem forseti Pakistan

Pervez Musharraf forseti Pakistan segir að hann hafi alls ekki í hyggju að segja af sér embættinu þrátt fyrir stórsigur stjórnarandstöðuflokkana í þingkosningunum sem haldnar voru í vikunni.

Á sama tíma hafa tveir stærstu stjórnarandstöðuflokkarnir lýst því yfir að þeir séu reiðubúnir til að mynda samsteypustjórn í landinu. Musharraf segir að hann muni reyna að vinna með hvaða stjórn sem mynduð verður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×