Tónleikar Bubba studdir af nýstofnuðum samtökum 19. febrúar 2008 19:34 Bubbi Morthens
Samtökin Ísland Panorama hafa verið stofnuð til þess að vinna gegn kynþáttafordómum. Í yfirlýsingu frá félaginu kemur fram að nauðsynlegt sé að koma í veg fyrir atburði við þá sem við höfum orðið vitni að upp á síðkastið. Yfirlýsingu frá félaginu má sjá hér að neðan: Atburðir síðustu daga þar sem fólk af erlendum uppruna hefur orðið fyrir kynþáttafordómum og jafnvel líkamlegum meiðingum eru mikið áhyggjuefni. Þetta er bæði sorglegt og dapurlegt! Samtökin Ísland Panorama eru stofnuð til þess að vinna gegn kynþáttafordómum. Við viljum nota tækifærið sem hér gefst, til að sýna samstöðu í baráttunni gegn kynþáttafordómum. Það er nauðsynlegt að koma í veg fyrir atburði á borð við þá sem við höfum orðið vitni að upp á síðkastið. Ofbeldi má aldrei samþykkja eða líta framhjá. Ofbeldi gegn saklausu fólki, vegna haturs, er glæpur sem ekki verður litið framhjá eða þagaður í hel. Samvisku og virðingar okkar vegna verðum við að koma í veg fyrir þróun af því tagi. Það er mikilvægt að fram fari opinská umræða um fordóma, sem oftar en ekki eru sprottnir af fáfræði og skorti á skilningi. Íslendingar eru upplýst og vel menntuð þjóð, með sterka réttlætiskennd og hefur verið háttur þeirra að koma vel fram við náungann. Við hvetjum Íslendinga til að taka höndum saman og berjast gegn ofbeldi og mismunun. Tökum því fagnandi þessu frábæra framtaki Bubba Morthens, sem ásamt öðrum listamönnum, leggur sitt af mörkum í baráttunni fyrir heilsteyptara samfélagi, okkur öllum til hagsbóta. Það er sama hver uppruni okkar er, það sem við eigum sameiginlegt er mun meira en það sem skilur okkur að. Ísland Panorama styður framtak Bubba og leggur málefninu einróma lið. Við hvetjum alla til að mæta á tónleikana og sýna þannig í verki samstöðu gegn kynþáttafordómum. Byggjum betra samfélag! Látum verkin tala og útrýmum RASISMA á Íslandi.
Mest lesið Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Lífið Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Lífið Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Lífið Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Lífið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Lífið Hvað veistu um… Djúpavog? Lífið Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Menning Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Lífið Ein heitasta leikkona landsins á lausu Lífið Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Lífið Fleiri fréttir Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Sjá meira