Lest talin óraunhæf fyrir sex árum 19. febrúar 2008 19:13
Tólf þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Árna Þórs Sigurðssonar lögðu í dag fram á Alþingi tillögu um að hagkvæmni lestarsamgangna yrði könnuð, bæði innan höfuðborgarsvæðis sem og milli Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar. Hagkvæmniathugun sem Orkuveita Reykjavíkur lét gera á þessu fyrir sex árum sýndi að slík lest myndi kosta 33 milljarða króna og verða rekin með miklu tapi.Þegar umræða blossaði síðast upp um lest milli Leifsstöðvar og Reykjavíkur fyrir átta árum lét Skjár einn gera þessar myndir af því hvernig hún gæti litið út. Þingmennirnir tólf sem flytja tillöguna vilja að samgönguráðherra láti einnig kanna hagkvæmni léttlestakerfis innan höfuðborgarsvæðisins og sjónum verði ekki aðeins beint að efnahagslegum ávinningi heldur einnig umhverfislegum og skipulagslegum, og að niðurstaða verði fengin fyrir árslok. Niðurstöður hagkvæmniathugunar sem Orkuveita Reykjavíkur lét gera um lest milli Reykjavíkur og Keflavíkur voru birtar fyrir sex árum. Fram kom að, jafnvel þótt stofnkostnaður upp á 33 milljarða króna yrði ekki reiknaður með, yrði 250 milljóna króna tap á lestinni á hverju ári. Guðlaugur Þór Þórðarson, þáverandi stjórnarmaður Orkuveitunnar, sagði þá að alið hefði verið á óraunsæjum væntingum um lestarsamgöngur á Íslandi. Miklum fjármunum hefði verið eytt í að reikna út það sem allir vissu; að framkvæmdin væri óhagkvæm.
Mest lesið Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Erlent „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Innlent Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Innlent Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Innlent Fleiri fréttir Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Sjá meira