Túrkmenar minnast Turkmenbashi 19. febrúar 2008 16:54 Faðir Turkmena vakir yfir þjóð sinni þótt hann sé horfinn yfir móðuna miklu.
Túrkmenar minnast í dag afmælis Saparmurat Niyazovs, fyrrum leiðtoga landsins sem lést árið 2006. Í tilefni dagsins var vígður nýr skóli sem byggður er í líki bókarinnar Rukhnama sem Niyazov, sem oftast var nefndur Turkmenbashi, eða faðir Túrkmena, skrifaði. Bókin varð að eins konar Biblíu og krafðist Turkmenbashi þess að landsmenn allir lærðu hana utanbókar. Turkmenbashi var um margt sérstakur leiðtogi og átti hann það til að setja furðuleg lög og reglur í landinu. Hann bannaði embættismönnum sínum meðal annars að vera með gulltennur auk þess sem óperur og fjölleikahús voru bönnuð með öllu. Þá breytti hann nöfnum á mánuðum ársins og sem dæmi ber apríl nú nafn móður hans. Einnig vakti stytta sem reist var af honum í þessu fátæka landi mikla athygli, enn styttan er gríðarstór, gullslegin og snýr andlit leiðtogans ávallt mót sólu. Þrátt fyrir að Turkmenbashi sé allur gætir áhrifa hans enn og svo dæmi sé tekið er bókin Rukhnama enn skyldulesning í grunnskólum landsins auk þess sem hlutar hennar eru notaðar í ökuprófum. Þó hefur arftaki Turkmenbashi, forsetinn með þjála nafnið, Kurbanguly Berdymukhamedov, dregið úr ofuráherslu á bókina Rukhnama. Sem dæmi um það má nefna að skólinn sem vígður var í dag á að leggja áherslu á vísindin en ekki á bókina sem nafn hans og útlit er dregið af.
Mest lesið Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Erlent „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Innlent Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Innlent Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Innlent Fleiri fréttir Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Sjá meira