Bannað að leggja á seðilgjöld 19. febrúar 2008 15:13 MYND/GVA
Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra hefur beint þeim tilmælum til fjármálafyrirtækja að þau bjóði ekki kröfuhöfum sem nýta sér innheimtuþjónustu þeirra að bæta seðilgjöldum eða sambærilegum kröfum sem neytendur hafa ekki getað samþykkt við aðalkröfuna. Þetta gerir ráðherra í samræmi við tillögur starfshóps sem gerði úttekt á lagaumhverfi um viðskipti neytenda og banka í ljósi nútímaviðskiptahátta. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir enn fremur að fjármálafyrirtækjum sé óheimilt að innheimta seðilgjöld eða aðrar fylgikröfur í tengslum við innheimtu krafna á grundvelli þjónustusamnings við fyrirtækinema að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Meðal þeirra er að seðilgjaldi endurspegli raunkostnað við útsendingu seðla, að neytendur geti greitt á annan hátt, meðal annars með millifærslu og þáverði neytendur að fá reikning vegna viðskipta, á pappír að rafrænt. Þá beinir viðskiptaráðherra því til fjármálafyrirtækja að tryggja gott aðgengi neytenda að viðskiptaskilmálum og gjaldskrám sínum, meðal annars með hliðsjón af nútímaupplýsingatækni.„Tilmælin eru í samræmi við grundvallarreglur kröfuréttar um að sá sem óskar eftir þjónustu greiði fyrir hana og meginreglur neytendaréttar um að samningur þurfi að standa að baki kröfu sem ekki grundvallast á lögum.Stór hluti viðskiptalífsins byggir á innheimtu krafna í gegnum innheimtukerfi banka og sparisjóða. Samtök atvinnulífsins og Samtök verslunar og þjónustu hafa lýst sig reiðubúin til samstarfs við ráðherra um að tryggja að farið verði eftir tilmælum þessum. Samtökin hyggjast jafnframt efla fræðslu meðal kröfuhafa um heimildir til innheimtu aukakostnaðar gagnvart neytendum og leggjast þar með á eitt með ráðherra og fjármálafyrirtækjum um að koma til leiðar að verklag við innheimtu verði í samræmi við gildandi rétt," segir enn fremur í tilkynningu ráðherra.
Mest lesið „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Valgarð Már er látinn Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Sjá meira