Erlent

Armenar kjósa forseta

Kona með kerru gengur framhjá auglýsingaspjaldi eins frambjóðandans, Serzh Sarkisian, sem er núverandi forsætisráðherra landsins.
Kona með kerru gengur framhjá auglýsingaspjaldi eins frambjóðandans, Serzh Sarkisian, sem er núverandi forsætisráðherra landsins. MYND/AFP

Armenar ganga til kosninga í dag og kjósa nýjan forseta landsins. Hörð barátta hefur verið milli frambjóðendanna en margir Armenar telja kosningarnar snúast um atvinnuleysi, fátækt og spillingu. Aðrir segja einnig kosið um hvort gera eigi frekari tilslakanir til að leysa ágreining við Aserbaídsjan vegna Nagorno-Karabakh.

Þó landið sé lítið er það talið mikilvægt þar sem það liggur á milli Kaspíahafsins, þar sem olíu og gasframleiðsla er mikil, og gas- og olíumarkaða í Evrópu.

Um 3,2 milljónir manna búa í Armeníu sem áður var hluti af Sovétríkjunum. Slæmt efnahagsástand og vopnuð átök hafa hrjáð landið síðustu ár.

Kjörstöðum lokar klukkan 20 í kvöld, klukkan 16 að íslenskum tíma, og er búist við fyrstu tölum á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×