Erlent

Serbar kalla sendiherra sinn heim frá Washington

Serbar hafa kallað sendiherra sinn í Washington heim sem mótmæli gegn viðurkenningu Bandaríkjamanna á sjálfstæði Kosovo. Jafnfram saka Serbar Bandaríkjamenn um brot á alþjóðalögum.

Stjórnvöld í Serbíu segja að um fyrstu viðbrögð þeirra við sjálfstæði Kosovo sé að ræða og hóta að kalla sendiherra sína heim frá öllum ríkjum sem viðurkenna sjálfstæði Kosovo. Meðal þeirra þjóða eru Bretar, Frakkar og Þjóðverjar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×